23 jún 2022
Í dag lauk Menntamálastofnun við að innrita nýnema í framhaldsskóla. Alls voru 49 nýnemar innritaðir í MÍ. Nýnemar skiptast eftir brautum þannig:
| Félagsvísindabraut | 3 |
| Grunnnám málm- og véltæknigreina | 12 |
| Húsasmíði (kennsla hefst um áramót) | 4 |
| Lista- og nýsköpunarbraut | 6 |
| Náttúruvísindabraut | 6 |
| Opin stúdentsbraut | 14 |
| Sjúkraliðabraut | 3 |
| Starfsbraut | 1 |
Innritaðir nemendur eiga von á innritunarbréfi frá skólanum í pósti. Við bjóðum nýnema haustsins 2022 velkomna í MÍ og hlökkum til samstarfsins með þeim.



