Ný stjórn Nemendafélags MÍ

5 maí 2025

Ný stjórn Nemendafélags MÍ

Ný stjórn nemendafélags MÍ.
Ný stjórn nemendafélags MÍ.

Aðalfundur Nemendafélags MÍ var haldinn í síðustu viku. Að fundinum loknum fluttu frambjóðendur til nýrrar stjórnar framboðsræður sínar og hófust í kjölfarið kosningar í embætti. Tilkynnt var um niðurstöður kosninga með viðhöfn í Tunguskógi. Nýja stjórn NMÍ skipa:

Anna Salína Hilmarsdóttir - Formaður

Ísak Helgi Björnsson - Gjaldkeri

Brynhildur Laila R. Súnadóttir - Ritari

Kristján Hrafn Kristjánsson - Menningarviti

Grétar Logi Sigurðsson - Málfinnur

Anna María Ragnarsdóttir - Formaður leikfélags

Soffía Rún Pálsdóttir - Formaður vídeóráðs

Tristan Ernir Ársælsson - Fulltrúi verknámsnema

 

Óskum nýjum fulltrúum í stjórn nemendafélagsins til hamingju með kjörið, sem og velfarnaðar í störfum sínum fyrir nemendur MÍ næsta vetur.

Til baka