Námsráðgjöf Menntaskólans á Ísafirði
Hlutverk námsráðgjafa Menntaskólans á Ísafirði er að standa vörð um velferð nemenda, styðja þá í námi og aðstoða við val á framhaldsnámi.
Námsráðgjafi er málsvari og trúnaðarmaður nemenda og er bundinn þagnarskyldu um einkamál þeirra.
Námsráðgjafi er við á auglýstum viðtalstíma, hægt er að koma við eða panta tíma hjá ritara í síma 450-4400.
Til námsráðgjafa er hægt að leita vegna:
- Vinnubragða í námi
- Uppbygging náms í MÍ
- Náms- og starfsval
- Hindrana í námi
- Hljóðbóka
Náms- og starfsráðgjafi MÍ
Stella Hjaltadóttir - stella@misa.is